Ættin frá Eystri Skógum og Drangshlíð undir Eyjafjöllum

Heimasætan í Eystri Skógum og prestssonurinn úr Vatnsdalnum

Eyjafjöllin, fornir sjávarhamrar, móbergstapar með stökum blágrýtisinnskotum, blasa við augum frá Vestmannaeyjum og draga af því nafn. Frá Markarfljóti austur að Skógasandi mynda þau fagran og skjólgóðan bakgrunnur fyrir byggðina sunnan þeirra, Útfjöllin vestan Holtsóss og Austurfjöllin þaðan að Jökulsá á Sólheimasandi. Austurfjöllin voru heimahagar föðurömmu minnar Önnu Jónsdóttur frá Eystri Skógum og Drangshlíð.

Sunnan undir Skógaheiði miðja vegu milli Jökulsár á Sólheimasandi og Skógaár er bærinn Eystri-Skógar á landnámsjörð Þrasa Þórólfssonar sem náði frá Jökulsá vestur að Kaldaklofsá vestan Hrútafells. Undir fjallshlíðinni skammt vestan Skógaár er sérstæður drangur markaður hellum og skútum. Ber hlíðin nafn af honum sem og bóndabærinn sunnan undir henni. Ofan hamranna rís keilulaga fjall, Drangshlíðarfjall, 476 m. há keila. Eystri Skógar eru fæðingarstaður ömmu en heimili hennar var lengst af í Drangshlíð og í Eyjarhólum.