Bragi Leifur Hauksson

Minning um traustan vin og góðan félaga

Bragi Leifur Hauksson, vinur minn og samstarfsmaður til margra ára, lést langt um aldur fram 20. júní sl. og var jarðsettur 13. júlí 2023. Við nokkrir tennisfélagar hans kvöddum hann með minningagrein í Morgunblaðinu, sem fer hér á eftir. Hún miðlar ekki nema broti af þeim minningum sem við eigum um Braga eftir áratuga kynni í starfi og leik. Hluta af þeim setti ég á blað í framhaldi af minningargrein okkar.