Birt í Heimildin 8. nóv. 2026
Skýrsla Viðskiptaráðs “Kraftur í kortunum” flytur þann boðskap að virkja skuli allar orkulindir á byggðu sem óbyggðu bóli og muni þjóðinni þá vel farnast. Þótt menn séu ýmsu vanir úr þessum ranni þykir nú mörgum að grilluföngurum hafi verið gefinn of laus taumurinn og spyrja hvers vegna ætti þjóð, sem notar sjálf aðeins um fimmtung af þeirri orku sem framleidd er í landinu og nýtur lítils af því sem umfram er, að rúmlega tvöfalda orkuframleiðsluna.
Í grein, Ál eða glópagull, í Heimildinni 31. maí sl., fjallaði ég um orkufreka stóriðja og ávinning af henni fyrir íslenskt samfélag. Sýndi ég m.a. fram á að stóriðjan, sem notar yfir 70 % af raforkuframleiðslu landsins, leggur lítið til hagkerfisins. Hjá henni starfar innan við 1% mannaflans með um 1,6% heildarlauna og tengdra gjalda. Hlutdeild hennar í vergri þjóðarframleiðslu var einungis um 1% þar sem hinir erlendum eigendur taka til sín allan hagnaðinn án þess að tekjuskattur skattur sé greiddur af honum. Af þeim virðisauka (þáttatekjum) sem þessi starfsemi skapar falla því um 99% til erlendra eigenda hennar og fjármagns en um 1% verður eftir hjá innlendum aðilum.
Við þetta má bæta virðisauka af sölu orku og annarra þjónustu til stóriðju en upplýsingar skortir um þá þætti. Þrátt fyrir bata á síðustu árum virðist hagnaður af orkusölu ekki vera umfram eðlilega ávöxtun þeirra fjármuna sem lagðir hafa verið uppbyggingu orkuveranna og aðkeypt þjónusta stóriðjunnar er ekki stór þáttur í starfsemi hennar.
Tekjur þjóðarbúsins af starfsemi erlendra fyrirtækja
Ársreikningar erlendra fyrirtækja hér á landi, fiskeldi í sjó, gagnavera og orkuvera, sýna að þau skila litlu í þjóðarbúið umfram þau laun sem þau greiða íslenskum starfsmönnum og launatengd gjöld. Hagnaður og aðrar tekjur af fjármagni renna til erlendra eigenda. Þessar tekjur eru stór hluti af virðisauka í flestri atvinnustarfsemi. Línuritið, sem byggt er á tölum Hagstofu Íslands, sýnir hvernig verg landsframleiðsla skiptist á framleiðsluþættina vinnuafl og fjármagn. Að jafnaði hefur hlutdeild launa og tengdra gjalda verið um 60% af virðisaukanum á meðan um 40% renna til eigenda fyrirtækja og fjármagns.

Af þessu má sjá að þegar atvinnurekstur er í höndum erlendra félaga, með þeim hætti sem hér hefur verið til þessa, verði að jafnaði aðeins um 60% af virðisauka af starfseminni eftir í landinu en 40% fara til erlendra eigenda. Með hliðsjón af þessu má spyrja hvað unnið sé með því að fá hingað beina erlenda fjárfestingu að óbreyttu ástandi í þessu efnum. Á það einkum við um starfsemi sem byggist á beinni eða óbeinni nýtingu náttúruauðlinda því í þeim tilvikum er hluti af hagnaðnum arður af auðlind í eigu þjóðarinnar og hlutur erlendu eigendanna í virðisaukanum mikið hærri en 40%. Þetta á t.d. við þegar orka er seld erlendum fyrirtækjum undir markaðsverði.
Tillögur Viðskiptaráðs
Rýna þarf tillögu Viðskiptaráðs um tvöföldun raforkuframleiðslu á næstu 12 árum í ljósi þess sem að framan greinir. Þótt það sé ekki sagt beinum orðum í skýrslunni er ljóst að forsenda þess, að geta selt tvöfalt meiri orku en nú er gert og nærri tífalt meiri en notkun innlendra aðila, er stóraukin sala til erlendra aðila sem fengnir yrðu til að starfa hér gegn því að fá ódýra orku og aðrar ívilnanir.
Þessi tillaga Viðskiptaráðs er stuðningur við áform erlendra félaga um byggingu vindmyllugarða víða um land. Væri farið eftir henni verða möguleikar íslenskra stjórnvalda til að stýra þróun orkukerfisins og landnýtingu orðnir að engu og grunnur lagður að því, að auk virkjana LV, byggi erlendir aðilar virkjanir við árnar þar sem þeim hentar, reisi vindmyllugarða á heiðum og klæði láglendið gagnaverum og verksmiðjum. Þetta leggur ráðið til án þess að gera grein fyrir hvort af því sé fjárhagslegur ávinningur og ef svo er þá hverra.
Þetta er reynt að fela með rangri og villandi staðhæfingu: “Engin rík þjóð notar litla orku”, studd er grafi sem sýnir VLF á mann og frumorkunotkun á mann í mörgum löndum. Vissulega er fylgni á milli talnanna á þessum skölum en það er fráleitt að sú fylgni sýni orsakasamhengi, þ.e. að orkunotkun skapi velsæld eins og reynt er að láta líta út fyrir. Samhengið gæti eins verið og er líklega á hinn veginn þ.e. að velsæld þjóðar leiði til mikillar orkunotkunar t.d. til hitunar á húsnæði, notkunar ökutækja, götulýsinga, útisundlauga o.s.frv. Mörg lönd ofarlega á velsældarskalanum framleiða ekki nema brot af þeirri orku sem þau nota en flytja inn það sem á vantar. Mörg fátæk lönd eru með orkulindir sem nýttar eru af erlendum aðilum án þess að landið hafi verulegar tekjur af og eru í líkri stöðu og Ísland er nú þegar og yrði enn frekar ef farið væri að tillögum ráðsins.
Ísland er ofarlega á skölunum um orkunotkun og háar tekjur. Um 80% af raforkunotkuninni skilar þjóðarbúinu aðeins um 1% af tekjum þess. Staða landsins ofarlega á tekjuskalanum stafar því ekki af því að framleiða og selja orku til erlendrar atvinnustarfsemi. Tilraun Viðskiptaráðs til að styðja tillögu sína efnahagslegum rökum er blekking ein.
Lærum af reynslunni og hugsum áður en við framkvæmum
Áður en lagt eru út í fjárfestingu í frekari orkuvinnslu til að þjóna erlendum stórfyrirtækjum ættu menn að líta til fenginnar reynslu og leggja mat á það sem við höfum raunverulega haft upp úr því á liðnum áratugum. Við megum ekki að láta blekkjast af stórum tölum um hagnað þessara fyrirtækjanna og útflutningsverðmæti framleiðslu þeirra heldur spyrja hvaða hluti af þeim verðmætum kemur fólkinu í landinu til góða. Það eru eingöngu laun íslenskra starfsmann við reksturinn og eftir atvikum laun og hagnaður af innlendri aðkeyptri þjónustu svo og sá tekjuskattur sem fyrirtækin greiða hér á landi sem jafnan hefur verið enginn. Það að fela erlendu aðilum að fjármagna og reka hér starfsemi sem byggist á nýtingu íslenskra náttúrauðlinda þýðir að við afsölum til þeirra a.m.k. 40% af virðisauka af starfseminni og mikið meira sé um verulega auðlindarentu að ræða. Við sitjum eftir með lítið meira en laun þeirra fáu starfsmanna sem þessi starfsemi skapar.
Þrátt fyrir bata á síðustu árum er vafamál hvort hagnaður af orkusölu til stórnotenda sé nú meiri en svo að hann svari til markaðsávöxtunar á því fjármagni sem bundið er í orkuverunum. Til að leggja mat til framtíðar á hagnað af orkusölu er nauðsynlegt að hafa í huga að stofnkostnaður við framleiðslu á sólarorku og vindorku hefur hríðfallið á undanförnum árum. Ef hann heldur áfram að lækka, sem líklegt er, hverfur það samkeppnisforskot sem orkuver á Íslandi hafa haft og staða þeirra í samningum við orkukaupendur, gamla sem nýja, verður léleg.
Hvorki í skýrslu Viðskiptaráðs né hér hefur verið fjallað um náttúrtengdan fórnarkostnað sem yrði af tillögum þess en etv. telur það sóknarfæri fyrir íslenska ferðaþjónustu liggja í því að rúnta með túrista milli gagnavera og vindmyllugarða sem þeirra vilja ekki hafa í heimalöndum sínum.