Vegna tengsla alþjóðlegra fyrirtækja við skattaskjól hefur á ný kviknað umræða um áliðnað á Íslandi. Af því tilefni hef ég sett á vefsvæði mitt smágrein, sem ég birti á eyjan.is 16. apríl 2013 þar sem ég fjalla um þjóðhagslega þýðingu sjávarútvegs og áliðnaðar. Tilefnið þá var m.a. auglýsingaherferð álfyrirtækja sem birtu um þetta leyti heilsíðuauglýsingar í dagblöðum um eigið ágæti. Í niðurstöðum greinarinnar segir:
„Þýðing áliðnaðar fyrir íslenskt efnahagslíf er einungis brot af þýðingu sjávarútvegs hvort sem litið er á framlag til þjóðarframleiðslu eða á vinnumarkað. Álverin nota um 75% af þeirri raforku sem framleidd er í landinu en leggja innan við 2% að mörkum hvort sem litið er á þjóðartekjur eða atvinnusköpun. Það er fásinna að halda því fram að unnt sé að byggja upp atvinnustarfsemi í landinu með fleiri álverum.“
Greinina má finna hér: https://indridith.wordpress.com/audlindir-og-storidja-2/alver-og-sjavarutvegur/